föstudagur, febrúar 25, 2005

Guðbjartur: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Vinna gengja og herbergjakeppni
  • Vinna pókerinn (hef aldrei tapað fyrir Jóni)
  • Að koma Jóni á lappir áður en hann á að mæta á teig
  • Að halda mér sem mest á braut

Pokinn

  • Driver: TaylorMade Burner 420, 8.5 gráður
  • TaylorMade 300 tour, 15 gráður 3 tré
  • Járnasett: TaylorMade RAC
  • Pútter: Odyssey 2 ball

fimmtudagur, febrúar 24, 2005

Jón Steinar: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Komast ofaní vatnið á annari..
  • Vinna gengja og herbergjakeppni
  • Vinna púttkeppnina
  • Vinna pókerinn

Pokinn

  • Driver: King Cobra 400 SZ,10.5°
  • Brautartré: Cleveland S-I,19°
  • Járnasett: Titleist 704CB
  • Pútter: PING Piper
  • Skór: Adidas Z-traxion
  • Caddy: Röggi og Bjarni Pétur

Bestu og verstu holunar

Þegar skorkortin mín frá því í fyrra eru skoðuð kemur ýmislegt fróðlegt í ljós. Á holum 1-9 gekk mér best á 2. holu en verst á 4. holu, á holum 10-18 gekk mér best með 15. holu en verst með 14. holu og á holum 19-27 gekk mér best með 24. holu en verst með 25./26. holu. Allar bestu holurnar eru par 3 en þær verstu eru par 4 eða par 5.

Bjarni Pétur: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Byrja á því að komast yfir þetta goðsagnakenna vatn á 2. braut.
  • Slá með SW af teig á eftir Grími.
  • Vinna herbergjakeppnina ásamt Rögnvaldi McBomberson.
  • Fá fugl.
  • Fá örn.
  • Spila besta hringinn af Spánarförunum.
  • Koma á þeirri reglu að það sé einn bjór fyrir hvert högg sem kylfingur slær yfir 100.

Pokinn

Sleggjur:

  • Driver (beint) – Taylor Made 320 Ti, 9.5°
  • Driver (slæs) – Ram 420 titanium, 10.5°
  • 3 Tré - Premier Golf

Restin:

  • Járn: Bíð eftir tilboði frá Golfgrími, fer vonandi út með Taylor Made RAC LT, 3 – PW
  • Wedgar: Titleist Vokey 60° og GO classic 64°
  • Pútter: Triforce 1 frá Odissey
  • Hanski: Nike eða Etonic
  • Bolti: Titleist pro V1
  • Skór: Ecco

þriðjudagur, febrúar 22, 2005

Tilkynning

Ég vil minna ferðafélaga mína á að fara að senda mér upplýsingar um "Pokann og markmið" svo hægt sé að birta það hérna á síðunni, netfangið hjá mér er base@snerpa.is

sunnudagur, febrúar 20, 2005

Nýtt útlit...

Það hefur birt aðeins yfir síðunni og það er komin ný könnun í gang. Minni einnig á að það er önnur könnun í gangi á www.baldur.blogspot.com þar sem kosið er um nýtt nafn á hópinn sem fer á Islantilla í vor.

Hópurinn

Það lítur út fyrir að 12 Víkarar verði á Islantilla 10. - 18. apríl næstkomandi, þetta eru Arnar Smári, Baldur Smári, Grímur, Jón Þorgeir, Runólfur, Svenni, Bjarni Pétur, Guðbjartur Flosa, Jói Ævars, Jón Steinar, Röggi og Öddi. Svo er vitað af 4-5 Ísfirðingum sem verða í sömu ferð.

Baldur: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Að fá fugl
  • Að komast niður fyrir 100 högg á 18 holur
  • Að komast yfir "gilið" í 2. höggi
  • Að nota innan við 30 pútt á 18 holum
  • Að komast inn á grín í 2 höggum á 4. holu (bjartsýni!)
  • Að vinna herbergjakeppnina

Pokinn

  • Adams GT 363 Tight Lies, stíft skaft, 10 gráður
  • Adams GT Tight Lies 3-tré, venjulegt skaft, 15 gráður
  • Adams GT Tight Lies 5-tré, venjulegt skaft, 19 gráður
  • Adams Ovation Tight Lies 7-tré, venjulegt skaft, 21 gráða
  • Adams GT Tight Lies járn, 3-PW, stíf sköft
  • Carbite sandjárn
  • Pútter: Odyssey 2Ball
  • Hanski: Nike
  • Skór: Ecco
  • Boltar: Callaway eða Srixon AD 333