fimmtudagur, mars 31, 2005

Fundur í Golfskálanum á laugardaginn

Spánarfararnir ætla að hittast í Golfskálanum á laugardaginn kl. 18. Þar verða málin rædd og leikfyrirkomulagið á Islantilla ákveðið.

miðvikudagur, mars 30, 2005

Spánarfarar stóðu sig vel á Þingeyri

Það voru haldin tvö páskamót á Þingeyri um helgina og var áberandi hve margir Víkarar mættu til leiks og auðvitað voru Spánarfararnir þar fremstir í flokki.

Grímur, Jón Þorgeir, Svenni og Jói Ævars spiluðu á fyrra mótinu á Skírdag. Grímur, Jón Þorgeir og Svenni léku í A-flokki en Jói Ævars í B-flokki. Jói Ævars stóð sig best af þeim en hann lenti í 2. sæti án forgjafar í B-flokki og sigraði í sama flokki með forgjöf.

Á 2. í páskum mættu Bjarni Pétur og Rögnvaldur til leiks en þá var leikið í einum flokki. Rögnvaldur var í fínu formi og varð í 2. sæti án forgjafar á 83 höggum og náði sá árangur einnig í 2. sætið með förgjöf.

miðvikudagur, mars 23, 2005

Mót á Þingeyri á morgun

Samkvæmt heimildum frá Unnsteini Sigurjónssyni verður haldið golfmót á Meðaldalsvelli á Þingeyri á morgun skírdag. Mótið hefst kl. 10 og eru kylfingar hvattir til að fjölmenna á mótið.

Islantilla golfvöllurinn

Núna eru allar holurnar á Islantilla golfvellinum komnar á netið og geta með því notað páskahelgina til að pæla í hvernig best sé spila völlinn. Hægt er velja hverja holu fyrir sig héðan af þessari síðu en við höfum einnig sett upp sérstaka síðu fyrir allan völlinn:

þriðjudagur, mars 22, 2005

Meira af Þingeyri

Sex bolvískir kylfingar skelltu sér á Þingeyri í dag og léku 9 holur á Meðaldalsvelli. Þetta voru þeir Grímur, Jón Ingi, Tommi, Rögnvaldur, Gunnar Már og Jón Steinar. Tommi spilaði best í dag og var á 41 höggi, Grímur lék á 43 höggum, Rögnvaldur og Gunnar Már voru á 46 höggum og Jón Steinar lék á 49 höggum. Menn eru greinilega farnir að hita af fullum krafti upp fyrir Spánarferðina og ekki mun það spilla fyrir undirbúningnum ef golfmót verður haldið á Þingeyri um páskana.

Þeir sem hafa verið að bíða eftir að ég kláraði 19. holuna geta tekið gleði sína því hún er komin á netið rétt eins og 20. holan. Innan skamms er svo von á restinni af vellinum.

mánudagur, mars 21, 2005

Páskamót á Þingeyri?

Heyrst hefur að það verði haldið golfmót á Þingeyri um páskana og má því búast við að einhverjir Spánarfaranna mæti þar til leiks.

Þá má geta þess að 17. hola og 18. hola eru komnar á netið.

föstudagur, mars 18, 2005

Tilboð í Golfskúrnum

Meðlimir bæði Svarta gengisins og Hvíta gengisins munu njóta sérstakra afsláttarkjara hjá Golfskúrnum fram að brottför.

3 holur í dag

Skammtur þessarar helgar er kominn á netið, þetta eru 14. hola, 15. hola og 16. hola.

fimmtudagur, mars 17, 2005

Bjarni Pétur er tvítugur í dag

Einn meðlima "Hvíta gengisins" er tvítugur í dag, við óskum Bjarna Pétri innilega til hamingju með daginn. Núna er drengurinn loksins orðinn nógu gamall til að kaupa sér birdie-pela í Ríkinu.

Í tilefni dagsins voru settar 4 nýjar holur inn á netið

miðvikudagur, mars 16, 2005

Kannanir

Lesendur þessa vefs hafa meiri trú á "Hvíta genginu" heldur en "Svarta genginu" í golfinu á Islantilla í ár. 57% telja að "Hvíta gengið" standi sig betur en 43% hafa meiri trú á "Svarta genginu".

Næsta könnun er svohljóðandi: "Hver verður fyrstur til að fara á 40 höggum eða minna holur 1 til 9?"

Að lokum er vert að geta þess að 9. holan er komin á vefinn.

þriðjudagur, mars 15, 2005

7. og 8. hola

Tvær holur komu inn á vefinn í dag, 7. holan sem kennd er við "Gilið" og 8. hola.

föstudagur, mars 11, 2005

Helgarskammturinn

Þá eru holur helgarinnar, þ.e. 5. hola og 6. hola komnar á netið. Sú sjöunda kemur svo á mánudaginn.

6 sæti laus

Samkvæmt nýjustu fréttum eru 6 sæti laus í ferðina okkar til Islantilla. Það var uppselt í ferðina en svo var bætt við fleiri sætum þannig að það stefnir í að það verði rúmlega 50 íslenskir kylfingar á svæðinu á þessum tíma.

Annars er 4. holan komin inn á vefinn.

fimmtudagur, mars 10, 2005

3. holan

Nú er greinargóð lýsing á 3. holunni á Islantilla komin á vefinn.

miðvikudagur, mars 09, 2005

Víkarar

Eftir miklar pælingar var ákveðið að nafnið á hópinn sem fer á Islantilla í vor verði einfaldlega "Víkarar". Við verðum því "Víkarar á Tillanum" í ár. Víkarar skiptast svo í "Svarta gengið" og "Hvíta gengið" (lærisveinarnir).

Ég minni einnig á að hin rómaða 2. hola á Islantilla er komin á netið.

þriðjudagur, mars 08, 2005

Jói Ævars: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Að spila á minni forgjöf eða betur.
  • Að verða ekki með lélegasta meðalskorið (þrátt fyrir að vera með hæstu forgjöfina)
  • Kenna strákunum að spila "alvöru" póker. Ef það gengur ekki þá kenna þeim Bridds

Pokinn

  • Driver: Adams GT363
  • 3 tré og 5 tré
  • Adams GT Ultimate járn
  • Adams GT milli og sandjárn
  • Odyssey 2ball pútter
  • Hanski: Etonic
  • Skór: Ecco
  • Boltar: Callaway og Wilson

Islantilla golfvöllurinn

Í dag hóf göngu sína nýr dagskrárliður á þessari heimasíðu. Í þessum dagskrárlið verður farið yfir Islantillagolfvöllinn í máli og myndum. Heiðurinn að þessari umfjöllun á Grímur og verður 1. holan kynnt til sögunnar í dag. Stefnt er á að það komi inn ein hola á dag næstu 27 dagana.

Arnar Smári: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Að nota ekki meira en 2 pútt á hverja holu
  • Að sigra í herbergiskeppninni ef Makker stendur sig
  • Að lenda í fyrstu þrem sætunum í heildarskori

Pokinn

  • Driver: Adams GT 363 Tight Lies, 10°
  • Adams brautartré, 15°
  • Adams brautar, 19°
  • Titleist 990 járnasett
  • Slazenger Wedge
  • Carbite pútter
  • Skór: á eftir að versla þá í Golfskúrnum hjá Grími
  • Boltar: Titeist

mánudagur, mars 07, 2005

Nafnið á hópinn

Þrátt fyrir miklar pælingar og umræður hefur ekki enn verið ákveðið nafn á hópinn sem fer á Islantilla í vor. Þau nöfn sem helst þykja koma til greina eru:
  • Svart/hvíta gengið
  • Golfvíkingarnir
  • Bindindisfélag ungra kylfinga
  • 100 kallarnir
  • Ernir (nb. fleirtalan af "örn")

Það ræðst svo næstu daga hvaða nafn verður fyrir valinu.

Gleðskapur - Þingeyri - Söngkeppni

Spánarfararnir höfðu ýmislegt fyrir stafni um helgina.

Svarta gengið ásamt eiginkonum (þar sem því er að skipta) hittist heima hjá Smára á föstudagskvöldið. Þar var glatt á hjalla og video- og ljósmyndir frá síðustu ferð sýndar... alveg óritskoðaðar. Smári átti heiðurinn að matseldinni, Grímur sá um allar fljótandi veigar og við hinir hjálpuðum aðeins til.

Grímur, Svenni, Smári og Runólfur fóru í gær að spila golf á Þingeyri ásamt Palla Rós og Daða. Meðaldalsvöllur var í þokkalegu ástandi miðað við árstíma og voru leiknar 9 holur. Það virðist sem menn komi vel undan vetri og var skorið ágætt eftir því. Smári stóð sig best og fór á 42 höggum en hann fékk m.a. fugl á 3. braut, Grímur var á 43 höggum, Runólfur á 45 höggum og Svenni á 49 höggum.

Rögnvaldur og Bjarni Pétur tóku þátt í Söngkeppni MÍ á laugardagskvöld og stóðu sig vel. Atriðið þeirra þar sem Rögnvaldur var í aðalhlutverki en Bjarni Pétur í bakröddum lenti í öðru sæti af 15 þáttakendum. Það er því ljóst að Runólfur mun fá verðuga samkeppni frá Rögga þegar lagið verður tekið á Blindrahótelinu á Islantilla í vor.

sunnudagur, mars 06, 2005

Sveinbjörn: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Mín markmið eru þau að reyna að bæta mína spilamennsku og hafa gaman að vera í góðra vina hópi

Pokinn

  • Driver: Adams GT 363 Tight Lies, 10°, Regular
  • Adams Tour, 13°, stiff, 3-tré
  • Adams Tour, 17°, stiff, 5-tré
  • Tough Shot Strong ?°, 7-tré
  • Kenneth Smith Ks-4, 9-tré
  • Járn eru Adams GT Ultimate, 4-PW, regular, grafít
  • Chipper er DDH tour
  • Pútter er YES C-Groove
  • Hanskar: Etonic
  • Skór: Hi-Tec og Adidas
  • Boltar: Pinnacle og Dunlop
  • Pokinn er Go Classic

laugardagur, mars 05, 2005

Golf Lávarðar og fylgisveinar - El Rompido 2005

Það eru fleiri en við Bolvíkingarnir sem halda úti bloggsíðu vegna golfferðar til Spánar í vor. Seyðfirðingarnir sem voru með okkur á Islantilla í fyrra fara í ár á El Rompido völlinn og hafa þeir komið sér upp bloggsíðu. Við eigum 2 myndir af Seyðfirðingunum frá því í fyrra...

Mynd 1 - Mynd 2

fimmtudagur, mars 03, 2005

Runólfur: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Að verða betri golfari
  • Að spila á forgjöf úti
  • Að fækka púttunum

Pokinn

  • Driver: Titleist 975i 9,5°
  • Tré: XPC stíft skaft, fimma og þristur
  • Járnasett: Ben Hogan Apex Pro járn, stíf sköft, XL löng
  • Wedgar: Ben Hogan 52° og Titleist 56° - 60°
  • Pútter: Odyssey 2-Ball
  • Bolti: Titleist Pro V1
  • Hanski: Etonic
  • Skór: Nike
  • Poki: Tommy Armor

miðvikudagur, mars 02, 2005

Rögnvaldur: Pokinn og markmiðin

Markmiðin
  • Ég ætla mér að spila betur en svo að ég þurfi að nota afsökunina: "tja, þið hafið nú verið hérna áður"
  • Ég ætla mér að vinna pókerinn því að það stoppar enginn Rögga 4fingers
  • Ég ætla mér að fara oftar á golfvöllinn heldur en æfingasvæðið
  • Ég ætla mér að kenna þessum vitleysingum að spila golf
  • Mér langar rosalega að fara holu í höggi. Trúið mér, það er gaman
  • Ég ætla að passa mig á því að kallarnir lendi ekki með mér í holli því að þeir taka alltaf með sér Birdie-pela. Ég vil ekkert vera að skemma þeirra ferð með því að láta þá vera blindfulla af koníaki

Pokinn

  • Driver: Ram FX Ti 440cc
  • Tré: Callaway Big Bertha Steelhead III 4 tré
  • Járnasett: 3-SW Ben Hogan Apex Blade (þess má til gamans geta að þarna í jarnasettinu er kylfan sem Rögnvaldur Magnússon fór holu í höggi með)
  • 52°: Titleist Vokey Design
  • 60°: Ben Hogan Carnoustie
  • Pútter: Odyssey 2-Ball DFX
  • Bolti: Hogan Apex
  • Hanski: NIKE
  • Skór: Ecco Gore Tex

Svarta gengið hittist

Svarta gengið mun hittast á föstudagskvöldið og þá verður síðasta ferð gerð upp í máli og myndum. Einnig má gera ráð fyrir leik- og keppnisfyrirkomulag næstu ferðar verði rætt ofan í kjölinn. Svo má líka búast við að nýtt nafn verði valið á hópinn sem fer á Islantilla 10. apríl næstkomandi.

Kannanir

Niðurstöður síðustu könnunar voru eftirfarandi:

Hverjir vinna herbergjakeppnina í ár?

Grímur & Svenni - 15%
Smári & Baldur - 19%
Nonni & Olli - 4%
Bjarni & Röggi - 22%
Guðbjartur & Jón - 22%
Jói & Öddi - 19%

Núna er komin ný könnun og spurt er: "Hvort gengið stendur sig betur á Islantilla?"