mánudagur, maí 16, 2005
Grímur afrekaði það í dag að verða fyrsti maðurinn til að fara holu í höggi á Syðridalsvelli. Grímur átti fallegt högg með 4-járni á 5. holu vallarins, boltinn lenti rétt fyrir framan grínið, skoppaði og rúllaði svo síðustu sentimetrana ofan í holuna. Þar með er Grímur sá fyrsti úr Svarta Genginu til að fara holu í höggi en það má einnig geta þess að Röggi Hvíta Gengis maður hefur einu sinni farið holu í höggi á Tungudalsvelli á Ísafirði.
laugardagur, maí 07, 2005
Birdie kóngurinn
Það gleymdist að nefna það að Runólfur Pétursson varð birdie-kóngurinn á Islantilla, hann setti niður 7 fugla í ferðinni sem þýðir að hann var að jafnaði með einn fugl á hverjum degi.
Bið í myndirnar
Það verður einhver smá bið í að ljósmyndirnar fari á netið, eigum við ekki að segja að það sé vegna tæknilegra örðugleika ;)
Jón Steinar var að biðja um fleiri "sleiki-video" frá meistara Rögga... hér koma þau.
Röggi vekur Jóa
Guðbjartur vekur Jón Steinar
Jón Steinar var að biðja um fleiri "sleiki-video" frá meistara Rögga... hér koma þau.
Röggi vekur Jóa
Guðbjartur vekur Jón Steinar


