Tölfræðin uppfærð
Holur 1-9: Meðalskorið fór úr 55,84 höggum í 52,30 högg. Árangur á holum 1, 5, 6, 7, 8 og 9 batnar en árangur á holum 2, 3 og 4 versnar milli ára.
Holur 10-18: Meðalskorið fór úr 53,87 höggum í 48,84 högg. Árangur á öllum holum árið 2005 er betri en árið 2004.
Holur 19-27: Meðalskorið fór úr 52,72 höggum í 47,76 högg. Árangur á öllum holum nema 21. holu er betri árið 2005 heldur en árið 2004.
Nú er bara spurning hve mikið við eigum eftir að bæta okkur á næsta ári.


