sunnudagur, apríl 30, 2006

Fuglarnir

Eins og áður segir fengum við 68 fugla í ferðinni, þar af var 62 fuglar á Islantilla golfvellinum og 6 fuglar fengust í El Rompido ferðinni. Tölfræðin yfir fuglana er eftirfarandi:

1.-9. hola: 16 fuglar
10.-18. hola: 26 fuglar
19.-27. hola: 20 fuglar

3. hola - 7 fuglar
8. hola - 5 fuglar
15. hola - 5 fuglar
12. hola - 4 fuglar
14. hola - 4 fuglar
20. hola - 4 fuglar
22. hola - 4 fuglar
24. hola - 4 fuglar
13. hola - 3 fuglar
17. hola - 3 fuglar
18. hola - 3 fuglar
25. hola - 3 fuglar
7. hola - 2 fuglar
10. hola - 2 fuglar
16. hola - 2 fuglar
21. hola - 2 fuglar
23. hola - 2 fuglar
2. hola - 1 fugl
6. hola - 1 fugl
19. hola - 1 fugl

Engir fuglar komu á holur 1, 4, 5, 9, 11, 26 og 27.

föstudagur, apríl 28, 2006

Birdie-keppnin

Það má með sanni segja að "Birdie-keppnin", þ.e. keppnin í því að fá sem flesta fugla, hafi verið fjörug í ár. Aldrei áður hafa menn verið jafn duglegir að fá fugla á Islantilla og stundum mátti engu muna að örn liti dagsins ljós. Alls fengum við 67 fugla í ferðinni og skiptast þeir á milli 13 kylfinga. Hér er lokastaðan í "Birdie-keppninni"

- Leiðrétting: Fuglarnir urðu 68, það vantaði einn fugl hjá Grími, hérna er því leiðrétt lokastaða:

1. Röggi - 17 fuglar
2. Jón Steinar - 11 fuglar
3. Kristján - 9 fuglar
4. Grímur - 7 fuglar
5. Runólfur - 6 fuglar
6. Hólmar - 5 fuglar
7.-8. Guðbjartur - 3 fuglar
7.-8. Pétur Geir - 3 fuglar
9.-10. Gísli Jón - 2 fuglar
9.-10. Orri - 2 fuglar
11.-13. Baldur Smári - 1 fugl
11.-13. Jói Ævars - 1 fugl
11.-13. Svenni- 1 fugl
14. Jón Vignir - engin fugl í ár en margir góðir sénsar, kemur eflaust sterkur inn næst

Herbergjakeppnin

Herbergjakeppnin var æsispennandi og réðust úrslitin ekki fyrr en í lok ferðarinnar, lokastaðan var þessi:

Án forgjafar:
1. Röggi og Orri með 1.282 högg
2. Guðbjartur og Jón Steinar með 1.301 högg
3. Runólfur og Jói Ævars með 1.350 högg
4. Pétur Geir og Hólmar með 1.382 högg
5. Grímur og Svenni með 1.424 högg
6. Baldur Smári og Kristján með 1.462 högg
7. Gísli Jón og Jón Vignir með 1.642 högg

Með forgjöf:
1. Röggi og Orri með 1.086 högg
2. Runólfur og Jói Ævars með 1.126 högg
3. Guðbjartur og Jón Steinar með 1.136 högg
4. Pétur Geir og Hólmar með 1.157 högg
5. Grímur og Svenni með 1.193 högg
6. Gísli Jón og Jón Vignir með 1.264 högg
7. Baldur Smári og Kristján með 1.266 högg

Röggi og Orri eru því sigurvegarar í herbergjakeppninni árið 2006.

Keppnin milli Svarta gengisins og Hvíta gengisins

Við tókum sjö 18 holu hringi inn í keppnina milli gengjanna tveggja. Lokastaðan var eftirfarandi:

Án forgjafar:
1. Hvíta gengið með 4.875 högg
2. Svarta gengið með 4.967 högg

Með forgjöf:
1. Hvíta gengið með 4.066 högg
2. Svarta gengið með 4.162 högg

Hvíta gengið stendur því uppi sem sigurvegari í þessari ferð.

X.O. Open

Opna X.O. mótið fór fram meðal okkar 22. apríl, þar var keppt í 18 holu punktakeppni þar sem holur 1-18 á Islantilla voru leiknar. Úrslitin voru eftirfarandi:

1. sæti: Hólmar með 34 punkta (betri seinni 9 en Röggi)
2. sæti: Röggi með 34 punkta
3. sæti: Jón Steinar með 32 punkta
4. sæti: Grímur með 30 punkta
5. sæti: Orri með 29 punkta

Röggi var svo með lægsta skorið en hann lék á 80 höggum, 38 á holum 1-9 en 42 höggum á holum 10-18.

Komnir heim

Spánarfararnir komu heim til Íslands í gærkvöldi eftir að hafa spilað rúmlega 200 holur á Islantilla og El Rompido. Ferðin tókst vel í flesta staði þó svo að betra netsamband hefði gert ferðina betri og fréttaskrif tíðari. Í næstu færslum verður ferðin gerð upp með helstu úrslitum.

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Staðan eftir 2 daga

Það hefur verið blíða hér á Spáni fyrstu daga þessarar golfferðar. Til að gera langa sögu stutta er staðan svona eftir fyrstu 2 keppnisdagana:

Herbergi án forgjafar:
1. Guðbjartur og Jón Steinar - 373 högg
2. Rögnvaldur og Orri - 376 högg
3. Pétur Geir og Hómar - 387 högg

Herbergi með forgjöf:
1. Rögnvaldur og Orri - 320 högg
2. Pétur Geir og Hómar - 323 högg
3. Guðbjartur og Jón Steinar - 325 högg

Gengi án forgjafar:
1. Hvíta gengi - 1390 högg
2. Svarta gengi - 1440 högg

Gengi með forgjöf:
1. Hvíta gengi - 1158 högg
2. Svarta gengi - 1210 högg

Fuglar:
1. Rögnvaldur - 6
2. Kristján - 5
3.-4. Pétur Geir og Grímur - 2 hver
5.-9. Grímur, Hólmar, Jón Steinar og Sveinbjörn - 1 hver

Það sem af er ferðar hafa mörg skemmtileg atvik komið upp og verður þeim gerð betur skil síðar. Á morgun er það Texas Scramble á vegum ÚÚ og svo er stefnan sett á Opna X.O. mótið í framhaldinu og veisluhöld um kvöldið.

þriðjudagur, apríl 18, 2006

Fyrsti dagurinn á Islantilla

Við lögðum af stað frá Íslandi kl. 7 í morgun áleiðis til Islantilla. Við vorum komnir út á golfvöll um 4 leytið og allir náðu að spila 9 holur í dag. Það var ekkert leikið í herbergja- eða gengjakeppni í dag heldur notuðu menn daginn til að finna sveifluna.

Það sem bar helst til tíðinda á golfvellinum var að það litu 3 fuglar dagsins ljós, Kristján fékk fugl á 2. holu, Grímur á 3. holu og Pétur Geir fékk fugl á 8. holu. Rögnvaldur átti besta skor dagsins en hann lék holur 1-9 á 43 höggum en næstur honum kom Grímur með 44 högg.

Á morgun tekur alvaran við, það verður byrjað á að spila 18 holur í höggleik en að þeim loknum verða teknar 9 holur í hreinni og klárri herbergjakeppni þar sem heiðurinn er í húfi.

Við munum reyna að koma með fréttir af gangi mála á golfvellinum eftir fremsta megni og jafnvel má búast við einhverjum myndum þegar á líður ferðina.

föstudagur, apríl 14, 2006

Grímur 46 ára

Grímur er 46 ára í dag og við óskum honum innilega til hamingju með daginn.

Gestabók

Það er alltaf skemmtilegt að sjá hverjir það eru sem skoða þessa síðu, okkur þætti vænt um að þið mynduð kvitta fyrir komu ykkar með því að skrá nafnið ykkar í gestabókina okkar.

Tölfræði

Það er búið að setja inn tölfræði á "profile"-síður þeirra kylfinga sem spiluðu á Islantilla vorið 2005. Þarna er talinn upp fjöldi fugla, para, skolla, skramba og sprengja af þeim skorkortum sem var skilað inn. Einnig er reiknað út meðalskor, besta skor og versta skor á öllum þremur hringjunum.

...það er kannski óþarfi að minna á að það eru aðeins 4 dagar þangað til við leggjum af stað til Islantilla...

þriðjudagur, apríl 11, 2006

Eftir viku...

...verðum við líklega búnir að spila 18 holur á Islantilla, komnir í ginið og farnir að segja sögur af skógarferðum dagsins. Það hafa nokkrir til viðbótar skilað inn upplýsingum um pokann, markmiðin og fleira. Núna vantar einungis upplýsingar frá Jóa Ævars, Gísla Jóni og Jóni Vigni... sendið endilega á baldur@gmail.com

Næsta mál á dagskrá er að koma með meiri tölfræði frá því í síðustu ferð, þar verða t.d. upplýsingar um fjölda fugla, para og skolla hjá hverjum og einum auk upplýsinga um meðalskor.

föstudagur, apríl 07, 2006

11 dagar

Það eru aðeins 11 dagar þangað til við verðum að spila golf í sól og blíðu á Islantilla. Á meðan er allt á kafi í snjó hjá okkur og ekki útlit fyrir að þeir sem heima sitja komist í golf á næstunni.

Það eiga nokkrir eftir að skila inn upplýsingum um pokann og markmiðin, þetta eru Jói, Olli, Svenni, Jón, Gísli Jón og Pétur Geir. Formið sem við notum má nálgast í valmyndinni hérna til hægri... það væri best að senda upplýsingarnar í tölvupósti á baldur@gmail.com