mánudagur, maí 01, 2006
Það er ekki spurning að Orri og Röggi fá nándarverðlaunin í ár, þ.e. verðlaunin fyrir bestu nándina. Það er ef til vill nándinni að þakka að þeir eru að standa sig með prýði í golfinu þessa dagana. Röggi brilleraði á Spáni og Orri vann Opna Carlsberg mótið í Leirunni í dag. Þeir voru reyndar báðir að spila vel þar, Orri var á 87 höggum og með 43 punkta en Röggi var á 78 höggum og með 36 punkta. Þess má geta að Röggi var í 9.-12. sæti í höggleik án forgjafar sem verður að teljast góður árangur. Menn eru greinilega heitir eftir Spánarferðina!


